Hmmm...
Ykkar einlægur undirritaður SlimJimy er eiginlega stein hissa á sjálfum sér.
Ég er orðinn feitur!!
frá því ég flutti hingað í grænu gerfisveitina hef ég bætt á mig ágætis mallakút sem ég er hreint út sagt ekkert alltof stoltur af.
píslin ég sem var með grennri mönnum er kominn með þetta líka pabbalega bumbu.
spurning hvort að ég sé að breytast í pabba minn eða hvort ég geti afsakað mig með því að margar vinkonur mínar hafa verið í got-tíðum uppá síðkastið svo að ég gæti sagst vera samúðaróléttur.. en ég er farinn að líta út fyrir að vera kominn 5 mánuði á leið svo að ég veit ekki eigiinlega.. eina morgunógleðin sem ég hef upplifað er þynnka og ég held að ég muni samt ekki eignast krakka, ekki gjóta allavega.
er að spékúlera í að ná þessu af mér á sem skjótastan máta.
gæti farið í val-kilmer kúrinn sem gengur útá að háma í sig twinkies og fara svo í fitusog.
ég held ég geri eitthvað annað.
einhver ráð?

<< Home