the Great Comic pileup..
Já.... heimur minn er magnþrunginn, eins og skáldsaga eftir Gilgamesh Breadlam Crone, bíður eftir því að vera skrifuð.
Ég er einhvernvegin í funki núna... það er ekki eins og ég sé í einhverskonar ófrjórri ritstíflu. Öðru nær, þá er hugur minn eins og jökulá (kaldur, gruggur, fullur af aur og leðju..) stríður straumur.
Gallinn við þetta er hinsvegar sá að ég hef ekki tíma né getu til að losa þetta allstaman út.
Í gær lenti ég tildæmis í því misskemmtilegasta sem getur gerst. Ég var á kaffihúsi með Rasta Bongo og við vorum að spjalla við þónokkuð sætar og skemmtilegar stelpur. Þetta var allt í einhverskonar aulahúmor samt (eins og heimur minn á það til að vera) og Martröð (ekki götuheitið) hvers aulahúmorista varð veruleg. Ég kafnaði á kommbakki því þau hlóðust upp og ullu stíflu.
Honey Nut Homeblest
Ég= ... Það segir mamma mín allavega
Sæt dreadlock stelpa = maður á alltaf að segja það sem manni finnst..
Ég= Hvort finnst þér betra Homeblest að aftan eða að framan?
Dread= mér finnst það bara betra í munni...
...
stór augu rekast útum tóftir rauðhærða mannsins sem hálf-kafnar
Cue in inner-monologue : hvað nei ansk.. stífla á gatnamótum eistna, heila og kjafts...
Og auðvitað gat ég engu svarað, fyrr en of seint og þá var það hætt að vera fyndið.
En
Cést la vie!
Einar, Eins og annað Fólk.
Ég er hellings bitur líka útí fólk sem setur úta mig og segir mér að gera hitt eða þetta Eins og annað fólk.
Ég er ekki annað fólk, ef ég væri annað fólk, þá væri ég ekki Einar er það nokkuð?
Ef ég gerði allt eins og annað fólk, þá hlyti ég að verða einhver leiðinlegasti einstaklingur í heimi, eða einn sá athygliverðasti, því annað fólk eru jú 7.000.000.000 aðrir einstaklingar.
Hér með fylgir listi yfir hluti sem ég gæti gert til að þóknast þeim sem vilja minn veg sem líkastan öðru fólki.
Ég gæti kosið sjálfstæðisflokkinn Eins og annað fólk
Ég gæti svo stutt Vinstri-Græna Eins og annað fólk
Ég gæti hlustað á Írafár Eins og annað fólk
Ég gæti selt mig síðan til Sjóvár-Almennra Eins og annað fólk
Ég gæti ég gæti misnotað hesta Eins og annað fólk
Ég gæti gengið í PETA Eins og annað fólk
Ég gæti verzlað í Smáralindinni Eins og annað fólk
Ég gæti skrifað í sorprit Eins og annað fólk
Ég gæti lesið Dostojevski Eins og annað fólk
Ég gæti kallað mig listamaðurinn sem áður var þekktur sem Einar Eins og annað fólk
Ég gæti endurnefnt mig Einar Valur Bjarnason-Group Eins og annað fólk
Ég gæti gengið í Þjófkirkjuna Eins og annað fólk
Ég gæti líka verið Búddhista-karmískt-sinnaður-Votti með Vott af Baháítilfinninum Eins og annað fólk
Ég gæti skorið hár mitt við nögl og stutt kynþáttafordóma á suðurlandi Eins og annað fólk
Ég gæti dreift barnaklámi og aflað mér peninga þannig Eins og annað fólk
Ég gæti stutt stríðið í Írak Eins og annað fólk
Ég gæti sleikt anusinni á Bandarískri Ruslmenningu Eins og annað fólk
Ég gæti hangið í MÍR og talað um hvað ég er svag fyrir Svetlönum og Rússneskri menningu Eins og annað fólk
Ég gæti lapið upp allar afsakanir Zíonista um að þeir megi vera þarna Eins og annað fólk
Ég gæti líka lapið upp allaf afsakanir Hizbollah að þeir megi sprengja þetta Eins og annað fólk
ÉG VIL BARA FJANDAN SJÁLFAN EKKERT VERA ANNAÐ FÓLK!!!
eða eins og Birgitta okkar allra söng
Ég vil ekki vera svona. Lítil feit indjána-kona, ég vil bara verá Bikini með Kálf.

<< Home