þriðjudagur, október 26, 2004

Ich bin der Alte Mann?


Ég fæddist víst á þessum degi fyrir 23 árum síðan, nánar tiltekið kl 11:32.
annað merkilegt sem gerðist þann dag er meðal annars;

1774 fyrsta meginlandsþing bandaríkjanna var haldið í Fíladelfíusöfnuðinum laugarvegi.

1825 Erie skipaskurðurinn opnaði ofarlega í New York ríki, og tengdi þar með Erie vatn við Hudsonáina og hefur það valdið gífurlegri röskun á lífríki Kárahnjúka

1881 Byssubardaginn við OK Corral fór fram í Tombstone, Arizona þar sem Wyatt Earp, bræður hans tveir og hinn ástsæli berklasjúlingur, séntilmaður, spilafíkill, alkohólisti og málamaður "Doc" Holliday börðust á móti gengi Ike Clantons. Þrír meðlimir gengis Clantons létust; og bræður Erps meiddu sig.

1958 Pan American Airways flugu fyrstu Boeing 707 þotunni frá New York til Parísar; ferðin tók átta klukkstundir og 41 mínútu, enginn liðsmaður AlQuaeda var um borð og því stóðst flugið ekki verkalýðslög.

1962 Í einu áþreyfanlegasta dramatíska rifrildi kalda stríðsins, spurði hinn geðþekki sendiherra Bandaríkjanna í öryggisráði sameinuðu þjóðanna Adlai Stevenson Sovéskan collega sinna á meðan á fundi stóð hvort Rússar höfðu gleymt rakettum á Kúbu ''Ég er tilbúinn að bíða þar til helvíti frýs þar til þú annað hvort svarar eða réttir mér kaffið,'' sagði Adlai.

1967 Shainn af Íran krýndi sig og drottningu sína eftir 26 ár á PáfuglsHásætinu, að sögn var Páfuglinn feginn að vera laus við hústökufólkið.

1972 Bandaríski öryggisráðgjafinn Henry Kissinger yfirlýsti að ''Pís er í hönd'' um Víet~Nam

1975 Anwar Sadat var fyrsti forseti Egyptalands til að heimsækja Bandaríkin, að sögn fannst honum skortur á sandi, en kunni hann vel við Pirates of the Caribbean tækið í Disneyworld

1977 Tilraunaflaugin Enterprize lenti á óþæginlegan máta á Edwards flugstöðinni í Californiu, kvaðst Cpt. Jim 'Tiberius' Kirk sáttur..


1979 SuðurKóreiski forsetinn Park Chung-hee var skotinn til bana af yfirmanni Kóreisku Leyniþjónustunnar, Kim Jae-kyu. Kim sagði sér til málsbóta, að ekkert bannaði flipp.


1984 Nýfætt barn með mikinn hjartagalla fékk ígræðslu úr Bavían Apa í tilraunaskini í Loma Linda, Californíu. Barnið lifði ekki lengi og apinn fékk hjartað til baka.

1996 Saksókari Bandaríkjanna sýknaði Richard Jewell sem sakborning fyrir að leika sér með kínverja í Sprengitilræðinu á Ólympíuleikunum í Atlanta.

2001 Hæstiréttur Bandaríkjanna lokaði vegna þess að þeir gátu ekki hætt að hlusta á AnthraX, sem einnig voru vinsælir í Innanríkisráðuneiti þeirra, sem og í aðalstöðvum CIA.

Aðir sem eiga afmæli eru = Hillary Rodham Clinton (56); Shelley Morrison (67); Bob Hoskins (61); Pat Conroy (58); Pat Sajak (57) Jaclyn Smith (56) Bootsy Collins (52) Mohammed Reza Pahlavi(85) Maggie Roche (52) Keith Strickland (50) D. W. Moffett(49) Rita Wilson(45) Cary Elwes(41) Natalie Merchant (40) Keith Urban (36) Charlie Barnet (89) Tom Cavanagh (35) Mark Barry (25) Francois Mitterand (88) Domenico Scarlatti (319) Georges Jacques Danton (245) Henry Deringer (218) Charles William Post (150) Mahalia Jackson (93)

Og það merkilega er að Hinn rauðhærði Leedsari Adam Lockwood er 23 í dag, rétt eins og ég.. og rauðhærður.. uh.. sem betur fer er hann asnalegur og líkist einna helst Carrot úr Discworld og spilar fyrir vitlaust lið svo við eigum ekkert sameiginlegt..

erh..
jæja..

gefið mér eitthvað..

Nota Bene


Mig vantar alltaf Discworld bækur... ólesnar eru í bold, hinar eru í venjulegu letri; Mort; Wyrd Sisters; Guards! Guards!;Faust Eric; Moving Pictures; Witches Abroad; Men at Arms; Soul Music; Maskerade; Hogfather; Carpe Jugulum; The Last Hero; The Amazing Maurice and his Educated Rodents; A Hat Full of Sky; Going Postal
Eins vantar mig the Science of Discworld I&II, Darwin's Watch: Science of Discworld III, the Art of Discworld og the Discworld Companion eða bara eitthvað Pratchett lesefni.. og Góður listi yfir Pratchett finnst hérna

Tónlist er alltaf vel þegin Tool, Type O Negative, Pink Floyd, Zeppelin, Queens of the Stone Age, ég veit ekki hvað og hvað... bara.. eitthvað skemmtilegt á milli Lhasa de Sala og útí Wagner og yfir í Entombed yfir í Massive Attack og þaðan í the Misfits... bara eitthvað þar á milli..

Fyrir þá sem ekki hafa efni á einhverju ofangreinds; Ást Heimsfriður, Kynlífsgreiðar, Skynörvandi Lyf, Bjór, Félagskapur, Ráðleggingar og Vinátta eru alltaf vel þegin líka.


Tónleikar á Morgun


minna á tónleika hljómsveitarinnar Coburn á morgun, miðvikudag, kl 22:00 á bar11
allir að mæta!!