þriðjudagur, ágúst 24, 2004

Im Henry the VIII, I am....



Ég veit eiginlega ekki neitt hvað ég á að segja þessa dagana.
er eiginlega kominn úr bloggæfingu eftir netskort síðustu mánaða, en þetta fer að lagast.

Ég er búnað taka ákvörðun sem ég ætla að reyna að standa við.
þeir sem þekkja mig verða flestir hissa, en þeir sem þekkja mig best skilja þetta samt.
Ég eiginlega verð að standa við þessa ákvörðun fram að jólum, og svo hefjast aftur handa eftir jól.

já.

Ég er að draga ískyggilega úr drykkjunni,
niður í 4 skipti á mánuði.

í stað 20 skipta.

..
þó ég fái mér bjór reyndar með mat, þetta er ekki púritanadæmi eitthvað, þetta er ákvörðun um að hætta fyllerýi, eða það er... draga úr því niður í 20% núverandi fyllerýa.

~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Ég er að spá í að leggja mig allan fram í skólanum. en mig vantar húsnæði núna.
Ég er búnað vera að leita að Krauti sem ég þekki sem ég ætla/ði að leigja af, en ég finn hann hvergi helvítið á honum.

ef einhver veit um litla ódýra íbúð niðrí bæ, með 1 til 2 svefnherbegjum (svo ég geti haft meðleigjanda, þá má láta mig vita.

~~~~~~~~~~~~~~~~~~

Menningarnæturtónleikarnir gengu vel.
við munum spila aftur ef ég skil kátínu meðspilara minna rétt

hljómsveitina skipuðu

Hjalti/ "Rasta Bongo Coburn" =slagverk og flauta
Gaui/ "GGG Satan" =slagverk
Brjánsi mofo = slagverk
Addi/ "ég er víst betri en frægi litlibróðir minn" =slagverk
MC Messias = slagverk
Yðar einlægur/"SlimJimy(Coburn)" Gítar og slagverk
Loftur hinn óviðjafnanlegi = Bassi og gleðidans
Jón Geir Dressman = Trommur og Hamingja
og loks
Árni Hamar Coburn = Upptaka, slagverk og bjór.

verður þetta endurtekið og betrumbætt.

~~~~~~~~~~~~

Er að spékúlera að smíða mér nýja öxi,
ef einhver veit um góðar teikningar af Les Paul þá má sú manneskja hafa samband.

verið í SimBindi