Passía SlimJimys
Ég var að koma af sýningu á hinni stórfenglegu splattermynd the Passion of the Christ, og er skemst frá því að segja að hún fær 666 stjörnur af 5 mögulegum því þetta er stórvirki og tvímælalaust frábær mynd, en aftur á móti alls ekki fyrir viðkvæma.
Ég er eins og flestir lesendur mínir vita, ekki kristinn maður, heldur mætti frekar segja að ég sé eigin trúar, einskonar blanda af heiðnum, taoískum, hindúískum húmanista með messíasarduld. En engu að síður var ég mjög hrifinn af þessari mynd, enda er ég mjög hrifinn af boðskap Jesú frá Nazaret, enda mjög fallegur boðskapur. Verst þykir mér þó að kirkjunar menn hafa engan áhuga á boðskapi Jesúsar. Enda hafa þeir sjálfir ekkert vit á svoleiðis, vilja heldur byggja musteri og búa í höllum en að gera jörðina að sínu musteri og reyna frekar að gera eithvað gott úr málunum.
Aftur á móti var ég að velta því fyrir mér hvað kristnir menn meina með því að bera róðukrossa um háls sinn og búast við því að Jésú vilji sjá kross, snúi hann aftur.
Rétt eins og John Lennon vildi sjá skammbyssu og Leó Trotskí vildi sjá Ísnál.
Ég ætla ekki að segja hvort þessi mynd vekji upp gyðingahatur, ég held gyðingarnir sjái alveg um það sjálfir í Ísrael. Ég ætla ekki heldur að dæma um hvort myndin sé of ofbeldisfull, því hún er jú blóðug og átakanleg, en svona er víst farið með fólk um allan heim, daglega, og er það sorgleg staðreynd. Annars vil ég segja að mér fannst frábært að hafa myndina á Latínu og Arameisku, enda miklu flottara en enskan.
Hér eru nokkrar myndir úr myndinni ásamt þýðingum mínum á því hvað fólkið var að segja hverju sinni

Varstu að prumpa?

NeiNeiNei!! Ég vil ekki vita hvernig ég get grennst með Herbalife!!

Hefuru séð linsuna mina?

Hey þú! Hvað hangir á spýtunni

<< Home