þriðjudagur, apríl 27, 2004

Mennski Vírusinn



I'm tired of this back-slapping "Isn't humanity neat?" bullshit. We're a virus with shoes, okay? That's all we are. -Bill Hicks

Dreymdi soldið skrítinn draum í nótt.
Draumurinn gerðist í Japan, þar sem ég var bara í frekar góðu skapi og þannig, að rebellast á móti því að borga lestargjöldin með því að hanga aftaná svakahraðlest..
Ég er reyndar farinn að halda að japönsku ofurlestastöðvarnar í þessum draumi og risakringlan í öðrum draumi, sem mig dreymdi um daginn, seu tákn fyrir kapítalismann í heiminum í dag og þessvegna eigi ég ekki heima þar. Ég hafði gaman af þessu og flúði nánast alltaf.
Þegar ég var alltíeinu kominn til skógi vaxinna sveita Hokkaido, og var að snúa til baka lendi ég í því að félagi minn (man ekkert hver það var) smitast af sjúkdómi sem Bandaríkjamenn vhöfðu komið fyrir í einhverskonar bjöllu sem, ef flogin inn um vit þér, át allt flesk af beinum þínum og skapaði sjálfa sig úr því, og það frekar skrítnar manga-útgáfur af manneskjum.
Ég náði að slátra slatta af þessum stökkbreyttu mennsk-vírusum með pílukasti og haglabyssum.
Ég hef ekki hugmynd um hvað þessi draumur átti að þýða, en fyrir einhverjar furðulegar ástæður, lifðu allar grænmetisætur sem ég þekki af, og ég, og ég man að elsti vírusinn hafði á orði; merkilegt hvað þið sem viljið ekki drepa beljur eruð til í að drepa marga til að lifa af sjálf.

Ég ætla ekki að borða kjöt á næstunni!!
Ég er ekki grænmetisæta, en ég ætla að treysta hugboði mínu um að sleppa kjöti, vil ekki enda sem einhver stökkbreyttur vírus í einkennisbúningi frá Egó-Bensíni.


Ég hef verið að fylgjast með fréttum og verð að segja að mér finnast stjórnmál á íslandi í dag bara stórskemmtileg, og þó sérstaklega vegna þess hve fyndinn hann dabbi okkar er. Bakarar meiga nú ekki vera markaðsráðandi og eiga hlut í bakara-tíðindum. Samkvæmt rökunum sem þetta frumvarp er byggt á, mega Arkitektar ekki heldur eiga verktakafyrirtæki (sbr íslenska aðalverktaka) Tannlæknar mega ekki eiga nammiverksmiðjur, og því síður tannbursta.

Húmor í þessu.

Komst að niðurstöðu um daginn. Ég ætla að sprengja Þingvallakirkju ef kirkjan fær að eiga Þingvöll (við heiðingjarnir komum þangað fyrst og það er ekkert kristið við þinghald!)
Ég held að þarna sannist samt helst misskilningur kirkjunnar manna á boðskapi trésmiðsins frá Nazareth, hann vildi gera landið og mennina að musterum. Þjóðkirkjan vill byggja musteri og stela landi. Mæli með undirskrifarsöfnun á móti kirkjunnar mönnum í þessu máli.

Ég hef engan húmor fyrir mönnum sem þykjast eiga land. Það getur enginn átt land, landið á þig.

"Every part of this earth is sacred to my people. Every shining pine needle, every sandy shore, every mist in the dark woods, every meadow, every humming insect. All are holy in the memory and experience of my people"
"Even the rocks that seem to lie dumb as they swelter in the sun along the silent seashore in solemn grandeur thrill with memories of past events connected with the fate of my people, and the very dust under your feet responds more lovingly to our footsteps than to yours, because it is the ashes of our ancestors, and our bare feet are conscious of the sympathetic touch, for the soil is rich with the life of our kindred"
"If we sell you our land, remember that the air is precious to us, that the air shares its spirit with all the life it supports. The wind that gave our grandfather his first breath also receives his last sigh. The wind also gives our children the spirit of life. So if we sell you our land, you must keep it apart and sacred, as a place where man can go to taste the wind that is sweetened by the meadow flowers." -Seattle Höfðingi 1854


Nóg komið í dag.