Ég er er ekki frá því
að mér líði nokkuð betur. Ég er að vísu skítblankur og ætla að flytja héðan við fyrsta tækifæri, og fara að leigja, líklega me? David vini minum frá Noregi í haust.
Fékk ofnæmiskast á mánudaginn. hætti nefnilega á lyfjunum síðasta fimmtudag (og vááááá COLD TURKEY!!) þvílík fráhvarfseinkenni, enda var ég búinn að vera í þokuþvælu í tvær vikur, leiðinda aukaverkanir.. geng núna með með 2-3 tölfur alltaf á mér.
Ég er búnað vera rosalega duglegur að semja uppá síðkastið. Fékk reyndar alveg svakalega hugmynd á aðfaranótt þriðjudagsins, þegar ég og Eggi sátum og djamsessionuðum smá.. og ég fékk þá hugmynd að semja verk fyrir allavega 4 gítarraddir... er annars líka á fullu að semja, og endursemja fyrir skólan, það er geðveikt gaman...
Ég er samt ennþá soldið týndur í tilverunni, veit ekki hvernig eða hvað ég á að vera, en það er alltílagi, því ég held ég megi leifa mér smá excess og vitleysu ennþá, og trúið mér, Ég æta að gera það. Spurningin um hvernig maður fjármagnar það, þekkið þið einhverja bankastjóra og auðveldar leiðir til að brjótast inn hjá þeim?
Ég er þó kominn í smá break frá draumförum mínum og hef ekki orðið var við drauma mína í nokkra daga, sem er góður hlutur, því ég vil ekki vita það sem mig langar ekki að vita, og þessvegna er algjör óþarfi að undirmeðvitundin mín fari að kjafta einhverjum óþarfa upplýsingum að mér , því ég vil þær ekki. Tak þennan bitra kaleik, ég vil frekar fá mér bjór. Athyglivert reyndar, þegar mann dreymir detail í andliti fólks sem maður hefur aldrei séð áður, í öðru landi... en algörlega óþarfar upplýsingar samt.
Ég er með vægan hroll og er því að spá að fara að gera eitthvað að viti núna.
Ég skrifa aftur bráðlega.

<< Home