Sukkað á sjónum
Ég er að lesa Uppreisnina á Bounty eftir þá Charles Nordhoff og James Norman Hall, í útgáfu Alþýðuprentsmiðjunnar frá því 1939.. Bók sem afi minn heitinn átti. Ekkert merkilegt við það svo að segja.. nema kannski lýsingin á sukklíferni sjóaranna á þessu annars ágæta fleyi.
"Félagar Bakkusar gamla (skipslæknisins) voru Nelson grasafræðingur og Peckover skytta. Skyldustörf skyttunnar geta verið erfið og ábyrgðarmikil, en voru mjög létt um borð á Bounty. Peckover hfði mikið yndi af söng og var enn fremur stauphneigður. Hann fann því fljótt leiðina inn í káetu Bakkusar gamla. Nelson var stiltur (sic) maður, kominn af léttasta skeiði og hafði járngrátt hár. Enda þótt hann hefði allan hugan við jurtir sínar, hafði hann mikið yndi af félagsskap læknissins."
Mér er spurn. Hvar get ég skráð mig á þennan bát..?
Annars er fátt að frétta frá því í gær.
Fleiri mættu taka quizið sem ég gerði hérna fyrir neðan. Efast nú samt um að þar sé einhver yfirgripsmikil þekking um mig á ferð. Aðeins ein manneskja er búin að taka þetta ágæta test (og ég sem stritaði og stritaði við að reyna að semja góðar spurningar...;)) og fékk hún 60% rétta útkomu, sem verður að teljast ágætt.

<< Home