Bláar tíðir
Ég er einhleypur á ný. Fjarsambandið mitt, og stúlkunar sem ég elska ennþá, var víst ekki að ganga. Að henni fannst.
Ég var skilningslaus og óþroskaður. Hún var upptekin, og hrædd við að verða særð, enda er það ekkert skemmtileg reynsla.
Vei þeim fólum sem fara illa með hvert annað í ástinni, því það virðist allt lenda í höfðinu á mér.
Það versta er að ég get ekki verið reiður. Ef maður elskar einhvern leifir maður þeim að fara, og leita hamingjunnar.
Það er ekki eins og það sé neinn annar. Það er ekki eins og að ég geti sturlast af bræði og dottið í það í 6 mánuði eins og ég gerði eittsinn. Ég er of blankur. Ég hef ekki ástæðuna til þess að vera reiður. Ég er bara brotinn.
Mér líður eins og gengið hafi verið yfir sál mína, silkiofna, á manbroddum.
Ég hef aldrei áður verið jafn einn. Og ég vil aldrei aftur verða svona einn.
Ég ætla aldrei aftur að leifa mér að elska. Aldrei aftur að hleypa neinum inn fyrir skelina. Ég hef verið særður núna.
Og þetta mun ekki batna á næstunni.
Ég er kannski dramadrottning. Má jafnvel segja að ég sé væminn í eðli mínu. Kelling.
Ég brotnaði niður og grét eins og smábarn þegar ég áttaði mig á þessu.
Ég mun aldrei elska nokkra manneskju aftur.
Ég mun aðeins elska gítarana mína.
Það eina sem ég á eftir er melódía.
Það eina sem ég get gert er spilað.
Ég mun láta gítarana gráta fyrir mig framvegis.
Þartil ég verð næst ástfanginn og hef sjálfan mig að fífli og læt einhverja stelpu brjóta mig niður.
Kannski að ég ætti að gerast einn af þessum tilfinningalausu bastörðum sem fara illa með stelpur. Halda framhjá. Lemja þær. Öskra og fara illa með þær að öllu leiti.
Þá kannski myndi eitthvað samband endast?
Jæja. Ég get ekkert gert eða sagt.
Ég á ekki eftir að segja mikið hérna af viti á næstunni.
En.
Þ.
-Takk fyrir góðan tíma sem við áttum saman, vertu hamingjusöm, hvar sem þú endar, vona að þú finnir einhvern sem verður betri en ég. Ég lendi einhverntíman á fótunum aftur.
og þar sem ég er vanur að enda færslur á textum. Þá er hérna einn sem á vel við.
Let Love In
Despair and Deception, Love's ugly little twins
Came a-knocking on my door, I let them in
Darling, you're the punishment for all of my former sins
I let love in
I let love in
The door it opened just a crack, but Love was shrewed and bold
My life flashed before my eyes, it was a horror to behold
A life-sentence sweeping confetti from the floor of a concrete hole
I let love in
I let love in
I let love in
I let love in
Well I've been bound and gagged and I've been terrorized
And I've been castrated and I've been lobotomized
But never has my tormenter come in such a cunning disguise
I let love in
I let love in
I let love in
I let love in
O Lord, tell me what I done
Please don't leave me here alone
Where are my friends?
My friends are gone
O Lord, tell me what I done
Please don't leave me here alone
Where are my friends?
My friends are gone
I let love in
I let love in
So if you're sitting all alone and hear a-knocking at you door
and the air is full of promises, well buddy, you've been warned
Far worse to be Love's lover than the lover that Love has scorned
I let love in
I let love in

<< Home