Að afstaðinni helgi
Á föstudaginn stal einhver óprúttinn fáviti töskunni minni á ellefunni á smiðjustíg.. í henni voru textar, prósar, myndir og bókin Apocalypso eftir Robert Rankin sem ég var nýbúnað fá lánaða hjá Eggjamanninum... sem að var frekar pirrandi.. ef einhver sér litla svarta hliðartösku með grænum rennilás, haldið á ólinni með 2 lyklakyppuhringjum á ól sem tilheyrði tösku af V-Amp formagnara... þá væri ég til í að fá að vita, og ég gæti jafnvel borgað smávegis fundarlaun, það var ekkert í þessari tösku sem gæti gagnast neinum nema mér.. og ég sakna þessarar tösku mikið...
Hlutirnir virðast vísa uppávið.. tónleikarnir gengu ágætlega, kannski fyrir utan hversu oft ég var beðinn um að spila Gaudi Amus, sem ég kann ekki, enda hef ég aldrei verið MRingur.. og er ekkert að fara að fagna einhverju námi sem ég stundaði aldrei.
Ég held að manneskja hafi skrifað grúppíukomment á handlegginn á mér, á hebresku.. mér fannst það sæmilega fyndið, en þegar var komið útí það að ungar dömur reyndu að falbjóða mér sig fyrir það að ég syngi Gaudi Amus fannst mér eiginlega nóg komið... en maður lætur sig hafa það að fá einhver svona bjánakomment.. þá svarar maður bara fullum hálsi "ég held að konan yrði ekki rosa sátt við þetta" eða "tja.. ég hef aldrei stundað kynlíf með dýrum áður og ætla ekki að byrja núna...
Í gær fór ég svo á æfingu hjá Söngvakeppni Iðnskólanna, ég á víst að vera kynnir þar, þósvo að ég hafi aldrei verið Iðnskælingur... ég er alltaf að láta plata mig útí einhverja vitleysu.. Ég er náttúrulega góður í yfirborðskenndum hroka sem ég get látið fólk halda að sé grín... heh... jú ég fæ að segja það sem mér finnst, þósvo að ég sé ekkert að fara yfir á illkvittnislegar línur, sem ég á alltof auðvelt með.. ég er víst ekki Simon Colwelll þannig að ég er ekkert að fara að henda svoleiðis skítakommentum frá mér. En elskulegir Iðngaulararnir eru misgóðir. Með áheyrslu á mis.
samt er líka auðvelt að vera kvikyndi við þá sem eru góðir, ég bara má ekki vera vondur við þau... en ég verð víst að vera skondinn.. AHAHAHAHAH
arg
fólk gerir sér ekki grein fyrir því að ég er ekkert fyndinn, ég er bara nasty.. jæja.. verð að finna milliveg... kannski sjálfshæðni geti leyst meinhæðni af... vona það.. ég verð bara að vera vondur á mínum eigin showum.. ég man einhverntíman þegar einhver stúlka á pönktónleikum fyrir uþb 5 árum síðan líkti rödd minni við kvenkynfæri.. tja. ég svaraði "takes one to know one.."
Jamm.. mér leiðist heavy mikið samt þessa dagana.. finnst stundum eins og mig skorti orku til að gera hlutina.. taka til, leika mér, æfa mig, gera stöff... samt er ég alltaf að gera eitthvað svona..
arg
Wish you were here
So, so you think you can tell
Heaven from Hell,
Blue skies from pain.
Can you tell a green field
From a cold steel rail?
A smile from a veil?
Do you think you can tell?
And did they get you to trade
Your heros for ghosts?
Hot ashes for trees?
Hot air for a cool breeze?
Cold comfort for change?
And did you exchange
A walk on part in the war
For a lead role in a cage?
How I wish, how I wish you were here.
We're just two lost souls
Swimming in a fish bowl,
Year after year,
Running over the same old ground.
What have we found?
The same old fears.
Wish you were here.

<< Home