föstudagur, janúar 02, 2004

já...


jæja..
það er af mörgu að segja núna
ég er fluttur í litla sæta kjallaraíbúð á hverfisgötunni, og er búnað eyða tíma mínum mikið það síðustu tvær vikurnar, hávöxnum er bent á að lofthæð heima hjá mér er ekki þó nema 197cm, en eru hávxnir samt velkomnir, en beðnir um að hafa sig í lágvöxnu ástandi..

ég er ekki lengur einhleypur, og er mjög hamingjusamur með þetta samband, sem mér lýst svo vel á að, mér finnst bara að það geti jafnvel enst. sem eru jú auðvitað gleðilegar fréttir.. og vert er að taka fram að sú (ó)heppna er bæði ógeðslega falleg og hrikalega hæfileikarík, þó svo að hún vilji ekki játa það sjálf, það er ef maður segir það í efsta stigi (fallegust... best.. etc.. þið munið þetta úr barnaskólaíslensku) :)

ótrúlegt en satt slapp ég nánast algjörlega við jólaþunglyndið og er bara mjög ánægður með það, enda engin ástæða til þess að vera að fýlast eitthvað, nærstöddum er þó bent á að ef ég verð eitthvað þungur á brún að segja mér aulabrandara (my dog has no nose - how does it smell? horrible!./ wheres the tea strainer? its his day off!!)

fékk DVDspilara í jólagjöf.. þá er það bara að eignast einhverjar myndir.. hann virkar samt djöfulli vel. og ég er sáttur við það alltsaman
(þótt ég hafi ekki fegið bók í jólagjöf í langan tíma, er ég að læra að sætta mig við það. nota bene, þá hef ég mun meira gaman af því
að lesa bækur en a að liggja yfir vídjói. býst við því að það flokkist undir sérvisku nútildags, en svona er ég)

er lítið búinn að semja af lögum upp á síðkastið, er samt kominn með skemmtilegan hljómagang, sem ég er að semja melódíu við, vona að það hljómi jafn vel og ég ætla. en mér reynist samt erfitt að semja í svona hamingjugleði, þyrfti eiginlega að hafa svona "unhappy-place" sem ég get farið til að semja, og farið svo aftur í endalausa hamingjugleði.





svo er hérna sponsuð frétt.

Í fréttum er það helst að Heiða Ofurgyðja er formlega komin aftur á markaðinn. Fólk er beðið að halda ró sinni og mynda einfalda röð..


jamm
ég elska ykkur öll.
á ekki eftir að blogga strax í bráð, vantar tölvu og svollis..
kemur að því innan skamms.

lifið heil