í skauti framtíðarinnar.
Ég veit ekki hvernsvegna, en stundum virðist veröld mans hrinja á örskammri stundu.
Eins og hendi væri veifað er ég húsnæðislaus um næstu mánaðarmót, vegna ástæðna sem
ég sé mér ekki fært að vera að troða upp á netið að svo stöddu, en ég er ekki sáttur við
tilveruna núna, enda hlýtur lífsleiði, þunglyndi, almenn heimsangist og existentialísk krísa
að vera fylgi-fjör-fiskur þess að vera bóhematittur.
Allavega hefur furðulega stór hluti kaffhúsaskálda, beatnikka og intellectual-bjálfa verið þunglyndur,
og margir þeirra leyst það á miður skemmtilega máta eins og í snöru, svefnpillu-átfesti og púlsskurðum.
Ég er ekkert að fara út í þann pakka, enda er ég bara blankur og heimilislaus.
Ég er ekki samt frá því að ég hafi leyst úr þeirri krísu hérna rétt áðan, enda maður mikils klíkuskapar.
Ég held að ég hafi jafnvel komist í frekar feitt því að jafnvel verð ég orðinn fullgild 101rotta fyrir jólin.
En aftur á móti kemur þá að því að ég muni ekki blogga eins oft og ég vildi og uppfærslan sem ég
ætlaði að framkvæma á síðunni verður að bíða betri tíma. Nýs síma og nettengingar (svo vantar mig
vissa hluti í að eiga tölvu sjálfur.
Áðan fór ég og sótti um vinnu á nýjum skemmtistað og er ekki laust við að ég haldi að ég sé jafnvel
kominn með vinnu sem barþjónn á öðrum stað, auk þess sem ég stefni í að fara í bissness bráðlega.
Ég ætla ekki að gefa hann upp strax því að það væri frásinna, þið mynduð öll reyna að stela hugmyndinni.
Var að átta mig á því að ég er að stúdera Jazz í skóla (þó við Bjössi Thor spilum nú mikinn blús og einnig rokk)
Já... Jazz, jónur, krísa, alkahólismi, blankheit, miðbær, sjálfgerð klipping, námsmaður, barrotta.
Vanskil, hausverkur, kvennaför, tregaljóð, depurð, götótt föt, beat, hljóðfæri, Jazz.
Ég er ekki frá því að ég verði að fara að fá mér röndóttann bol og fara að ganga með alpahúfuna mína.
Drekka rauðvín og tala um Descartes, Camus, Bird, Trane, Django, byltinguna, og hvað hún var rétt/
röng og fari svo líka að setja saman og selja ljóðabók, sem heitir,
"Ljóðin mín sökka, en ég þarf að borga leigu- Kaupið bókina".
Einhverjir kaupendur?
hérna er fyrsta sýnishorn
Eftirá að hyggja, býst ég við að ég kjósi að nota frekar ljóðin mín heldur en einhverja súra popptexta.
Update: ég hef breitt linknum hér að ofan á ljóð sem ég mun nota.

<< Home