Masculínistafélag íslands
skrifað í framhaldi af kommenti hjá Jósaég hef verið sjálfur að íhuga stofnun nýs mascúlinistafélags, þar sem augljóst er að ungir drengir leiðast nú í stórauknum mæli út í vændi.
er ekki kominn tími á að við fáum eitthvað fyrir okkar snúð?
nei veistu, ég held þetta sé alltsaman rangt, því að þetta er bara partur a kapitalísku kerfi að einhver sé troðinn niður, sama hvors kyns það er. málið er að við blönku hvítu "alveg eins og allir ríku" karlmennirnir höfum bara ekki vælt jafn hátt, því við höfum enga afsökun "ég er kvenkyns, svartur, samkynhneigður.. etc" fyrir því að vera niðurtroðnir, því að ríkjandi stétt er einatt skipuð hvítum gagnkynhneigðum karlmönnum (og jú konum þeirra..)
maður gæti notað afsakanir eins og litla menntun, en ríkasti maður í heimi útskrifaðist ekki á sínum tíma..
og ég á ekki fyrir mat...
hmmm...
hvar ætli sé best að selja sig (svo maður geti farið í ísland í dag að væla yfir því að þurfa þess)? þá hefur maður afsökun til þess að stofna maskúlinistafélag, get ég farið að gráta og sagt frá því að ég hafi verið kynferðislega áreittur á vinnustað (tvær samstarfskonur mínar tróðu ísmolum inná mig, en þær eru sætar og ég hafði gaman af því...) og ég gæti sagt frá því að ég hefi verið lagður í einelti fyrir að vera ekki jafn hávaxinn og stæltur og hinir strákarnir, því það var steríótýpan sem stelpurnar í skólanum vildu (já jafnvel maður sem var ein gangandi graftarbóla, var kosinn kynþokkafyllsti strákur ársins, vegna þess að hann var massaður og hávaxinn, hafði ekkert milli eyrnana, og var í íþróttum (og er ennþá óbreyttur))þá er hægt að segja að konur vilji að við karlmenn séum einhverjar steríótýpur.. því þær vilja það líka alveg eins og karlmenn oft á tíðum...
einhverntíman rakst ég á auglýsingu á einkamal.is þar sem stúlka talaði um að hún vildi enga "litla, aumingjalega rauðhausa sem ekki væru með bílpróf" ég hugsaði með mér að þessi manneskja hlyti að þekkja mig, en gæti nú ekki fílað mig mikið... þar til að frasinn "og eru með lítil typpi" kom upp að ég gerði mér grein fyrir því að hún gæti ekki verið að tala um mig :P
gildir einu
Það sem ég er að reyna að segja er að ég held að fólk sé bara einum of mikið, hvort sem það er kvenkyns eða karlkyns, feministar eða ekki, þá er fólk að hugsa með typpinu á sér, og ég held að þetta fari ekkert að breytast í nánustu framtíð
nema að fólk hætti að kyngera hvert annað og jörðin gerist bisexual, þá er ekkert að fara að gerast í jafnréttismálum. og oft er jafn illa farið með karla og konur í þessum heimi, þetta er bara væl, því ef konur réðu, væri friður á jörðu nema hvað það kæmi upp heimstyrjöld einusinni á mánuði! (sorry þetta var karlrembulegur brandari, en ég er með barnalegan húmor)

<< Home