fimmtudagur, september 04, 2003

Sorgmæddur


Christiania, in memoriam


Í fréttum þessa vikuna er það helst að ég er ekki stoltur af kynþætti mínum. Ég er ekki heldur stoltur af heimshlutanum mínum, og ég er sérstaklega ekki stoltur af frændum okkar dönum. Nei.
Í fréttum frá frændum okkar frá flata landinu er helst það að þeir hafa lokað Kristíaníu, sem var þekktasta fríríki í heimi.

Með því er einhverjum athygliverðasta stað í heimi kippt af jörðinni. Til að byrja með var Stína draumaríki hippana, Ást, Friður og Hampur ríktu í þessari gömlu herstöð sem BZ-ederene, hústökufólk, tóku og hófu að nýta, eftir að herinn hafði yfirgefið stínu, '71. Seinna meir tóku glæpamenn eins og Hells Angels að setjast að þarna og tóku yfir, samt sem áður var Stína friðsæl. Enda ríktu aðeins þrennar reglur í þessari anarkísku-kommúnu, ekkert ofbeldi, engin vopn, og engin hörð eiturlyf

Stína Frænka RIP, 1971-2003



Ég veit ekki hvað ég á að segja við fráfalli Stínu frænku, enda er þetta svo fjarri mér að menn hafi lokað þessum yndislega áningarstað, sem var annar stæsti ferðamannastaður í Kaupmannahöfn, til þess að fá meira byggingasvæði undir einhverjar elliblokkir eða vitleysu. Það mætti bera þetta saman við það að malbikað yrði yfir Hljómskálagarðinn eða Klambratún og þar byggt McDonalds. Sumir hlutir í heiminum virðast óskiljanlegir.
Ein helsta afsökun Andrésar Fuck íRassinnsinn... fyrigefiði, ég ætla ekki að fara í skítkast, Anders Fogh Rasmussen, er að í Kristíaníu ríki lögleysa og eiturlyf og glæpir. Jú það eru náttúrulega eiturlyf, en ég tel að það sé betra að geta gengið að mildum eiturlyfjum vísum á Pusherstreet, en að Krakksala sé í gangi á Istedgade, og þar selt 14 ára krökkum.



Þessi afsökun er jú sú eina sem þeir hafa, og er þar verið að skýrskota til einhverja skrítinna kenda í fólki sem vill normalisera heiminn og gera alla steypta í sama farið, Í Christíaníu ríkir nefnilega kúltúr, þar er menning á hverju strái, enda eru Canabis neytendur oft listamenn, í kristíaníu voru kaffihús með stöðugu tónleikahaldi, þar var hjólaverksmiðjan, þar var íverustaður og hýbíli fólks, fólks með fjölskyldur, hunda og ég veit ekki hvað og hvað.
Þetta minnir mig einna helst á það þegar hvíti maðurinn settist að í Ameríku og hóf að gera Fumbyggjana dauða, og svo seinna meir, að drepa í þeim sálirnar, og gera þá hvíta, normalisera þá. Þá sagði nokkur höfðingi, að nafni Tecumseh Shawnee, á rauðskinnaþinginu 1927.

The white people, who are trying to make us over into
their image, they want us to be what they call "assimilated," bringing the
Indians into the mainstream and destroying our own way of life and our own
cultural patterns. They believe we should be contented like those whose
concept of happiness is materialistic and greedy, which is very different
from our way. We want freedom from the white man rather than to be
intergrated. We don't want any part of the establishment, we want to be
free to raise our children in our religion, in our ways, to be able to
hunt and fish and live in peace. We don't want power, we don't want to be
congressmen, or bankers....we want to be ourselves. We want to have our
heritage, because we are the owners of this land and because we belong
here. The white man says, there is freedom and justice for all. We have
had "freedom and justice," and that is why we have been almost exterminated.
We shall not forget this


Ég segji nei við normaliseringu, og hvet alla til þess að gera það líka,
vertu þú sjálf/ur, og láttu engan segja þér að vera annar..