fimmtudagur, júlí 31, 2003

Depurð



Heimurinn er stór og hættulegur staður, og ekki allir jafn vel útbúnir til þess að lifa af í honum, en þrátt fyrir alla herkju heimsins, mætti segja að netheimar væru jafnvel grófari..
Flestir kannast við feita hallærislega nördann sem var að æfa starwars skylmingar... fæstir vita aftur á móti að þetta er tíundubekkingur frá Quebec að láta vini sína plata sig.
Hver einasti einstaklingur sem hefur séð þetta vídjó hefur hlegið eins og asni.
Ég er engin Mother 'fuckin' Theresa, ég hló af mér rassgatið.. í svona 2 mínútur (þeir sem þekkja mig vita að það þarf sterk efni til þess að ég hlægi í 1..), en svo var ég að spá útí sálarástand drengsins, honum hlýtur að líða eins og bölvuðu fucking fífli.

Ég var að lesa við hann viðtal á netinu, þar sem honum er lofuð Ipod tölva fyrir snilldar framistöðu, og fólk safnaði peningum handa honum vegna þess hversu illa netið fór með hann.
Enda erum við mennirnir flestir það aftarlega í siðferðislegri þróun að ef túrbína væri fest við fætur Ekn-Atons gætum við notað hann til þess að leyra orkuvanda heimsins. Dapurlegt.
Aftur á mótir er mikið af fólki búið að vinna í þessum vídjóum og gera SWK RELOADED(http://www.arava.co.il/~ecc/SWK-mxr.wmv) (fullur listi hér að neðan)

En svo eru gaurar eins og þessi (http://www.boldlygoingnowhere.net/safetyfirst.WMV) sem eru kannski bara að leita að athygli, ég veit það ekki.. allavega mættan vera áfram í bolnum.

Núna er Ghyslain litli, (það er uppáhalds Jedinn okkar) kominn með þann vafasama titil að vera mest downloadaði maður á netinu. Enda Fjölmörg Remix til:

OriginalRe-MixSWK 2.0Dork ClonesTerminatorThe MatrixBulk HulkBraveKidBenny HillSWK - VSEMortal KombatDancing BabyEpisode IIIFart ManChicago KidRevolutionsDarth SWKDarth Maul GirlsAmerican LifeFreddy Vs SWKSWK in GothamBend it Like GhysainMaster of PuppetsKung Fu FightingLast SamuraiDarth FarleyThe SlayerShooStyleJedi Who Shagged MeHighlanderThe WBSWK VisionGay BarNeojam RemixesPinata KidSWK StudentFrank SinatraQuebec Remix Space Ghost Kid

Talsvert tæmandi listi yfir útgáfur, og í rauinni skipti sem fólk hefur ætlað að nota greyið strákinn til þess að hefja sig upp með svakalegri fyndni. Sem er í rauninni ekkert fyndið, aftur á móti, hlægjum við flest, því ekkert okkar var svo kúl í gaggó var það? ég var nörd, og er stoltur af því í dag.
en það er ástæðan fyrir því að ég hlæ, sem betur fer fór ekkert af mínum aulaskap á netið á sínum tíma. því ég væri örugglega á kleppi núna vætandi rúmið ef svo hefði verið.

Í dag eru foreldrar Ghyslains, sem eiga, ásamt Ghyslain, alla mína samúð, búin að fara í mál við ómannlegalega illgjörnu skólafélagana sem settu myndina á netið, enda hefu Ghysland þurft á sálfræðimeðferð að halda síðan.

Ef ég myndi hitta litla gaurinn, myndi ég vilja gefa honum í glas og segja honum að þetta verður alltíkey.
En, hann er Kanada svo ég fer nú varla að gera það.. hmm.. jæja.. svona er þetta.

Dæmið ekki eftir útlitinu menn. þið voruð sjálf einusinni nördar