Pabbi á afmæli
Hann á líka heiðurinn af því að vera eini maðurinn í heiminum sem er morgunfúlli en náttálfurinn ég... því miður er ekki til nein mynd af honum á netinu..
Ég hef verið að hugsa útí þetta alltsaman og komist að þeirri niðurstöðu að ég sé þónokkuð feginn að vera fæddur þegar ég var fæddur en ekki á sama tíma og afi minn, eða um síðustu aldamót.... móðurafi minn, Valdimar Indriði Ásmundsson var eimmitt fæddur árið 1900... ekki slæmt ár til þess að fæðast.. hann er nú reyndar látinn og er búnað vera í því ástandi í ein 33 ár...
Þegar hann var 9 ára þurfti hann að fara að vinna.. sem náttúrulega nær engri átt, hvað þá að senda smágutta útá ballarhaf á opnum fiskibát til þess að sjá fyrir fjölskyldu? hann lenti eimmitt í því að þurfa að sjá fyrir systrum sínum, móður og sjálfum sér..
Nokkru seinna, kynntist hann ömmu Evu, sem er ennþá á lífi (fædd 1908) og byrjuðu þau að búa til börn.. það var árið 1931.. þau voru ekkert að hætta þessu og héldu þessu áfram til ársins 1949... átján ár af börnum... afi þurfti að halda áfram að vinna eins og hestur....

Í dag er ísland 1rsta heims ríki, og ég hef alla ævi getað um frjálst höfuð strokið.. ég þurfti ekki að vinna á barnsárunum, ekki fyrr en í unglingavinnuni, en þar var náttúrulega ólympíuandinn, ekki að vinna, bara að vera með, ég er að verða 22 ára núna í haust og ég hef reyndar verið í mörgum dead end jobbum og á því ágætis safn af barmmerkjum og hárnetum.. ég þarf ekki að sjá fyrir neinum og ég er ekki viss um að ég sé ennþá orðinn nógu ábyrgðarfullur til þess að gera það, nema ef neyð kallaði.
aftur á móti þurftu kallar eins og afi að vera ábyrgðarfullir frá 9 ára aldri..
ég held ég gæti það ekki, þó svo að ég sé núna búnað vera í sömu vinnu í næstum 2 ár, finn ég mikla þörf fyrir flutning eitthvað annað... vonandi betur launað, og auðveldara starf fyrir morgunfúla... sjáum hvað setur með haustinu....

<< Home