Mea Status Horribilis
Mér líður ekki sem best, en það er nú lítið við því að gera.. einhvernvegin er líðan mín á þann veg og þá lund að.. tja mér finnst ég skítugur, og það er lítið í því að gera..
hugsandi út í það þá held ég að ég hafi verið skítugur frá því ég missti sveindómin, 15 ára að aldri fyrir fjöldamörgum árum.
Ég hef verið dirty ass bastard.. lifað í ólifnaði of öllum andskotanum, kvenfólki, áfengi og öðru eitri. mér varð hugsað til þessa þegar ég var að horfa á hina stórgóðu formúlumynd "Kjarninn" eða "the Core" í gær, að ef svo yrði að heimurinn myndi enda, væri ég kannski ekki sá sem ég vildi vera þegar ég dæi.
Ekki er svo að skilja að ég hafi orðið fyrir einhverskonar frelsun, því langt því frá þá hef ég verið að hugsa þetta á mjög heiðinn hátt.
Ég er ekki alltaf aftur á móti trúr minni sanffæringu, það er, ég hef ekki alltaf hegðað mér sem slíkur.
Kannski þarf ég bara að fara í sturtu? veitekki.. finnst ég þarfnast Kumbh Mela fyrir sjálfan mig..








fyrir þá sem skilja ekkert í þessu þá erKumbh Mela þvottahátíð Hindúa sem fer fram við árnar 3, Ganga, Saraswati og Yamuna.
ég er farinn að hafa áhyggjur af því að ég sé að breytast í Indverja, eða öllu heldur að ég sé að fá George Harrisoníska dellu fyrir Indlandi, sítörum og Hindúisma, og kannski bara asíu yfirleitt.. enda er ég farinn verzla mér föt frá Asíu (Nepal og Tíbet nánar tiltekið,) og ganga í kínaskóm... veitekki afhverju í andskotanum þó...! Kannski er það að Indverjar eru nett decadent á tíðum, enda höfundar Kama Sutra og miklir THC neytendur...
engu að síður.. þá fann ég skemmtilega síðu með Asískri list, og þar var eimmitt þessar myndir (sem eru hér að ofan) að finna... einnig rataði ég inná
skemmtilega sýningu á Indverskri list... :)

ég er samt ekkert á leiðinni í ljós.. og samningaviðræður um að ég gerist Grænmetisæta ganga illa, hrísgrjón eru þó fín.. en ég þoli ekki soja

<< Home