þriðjudagur, apríl 22, 2003

little Wing part II


ég held ég hafi séð engil...
fór áðan niðrí bæ með Árna Hamri félaga mínum og við ætluðum að skipta um dekk á bílnum hans sem var parkeraður í Hafnarstræti...
nema hvað.
sprungið á báðum og við látum Vöku sækjann... ætlum að taka strætó á Lækjartorgi og Hamarinn fer inn til þess að skipta. Þannig að ég var eftir og ætlaði nú aldeilis að gæða mér á sígarettu. Þar byrja ég að spyrja rónakellu sem var að kveikja sér í, nema hvað hún er grýla og segir nei.
Þá sá ég Krullu. ég kýs að kalla hana svo vegna þess að þessi stelpa, með mátulega suðrænt útlit, var merkilega krulluð og minnti einna helst á trommustelpuna sem spilar með Lenny Kravitz.... hún gaf mér eld og ég henni bros og við skiptumst á augngotum... síðan hélt hún á braut í 111 þar sem hún starði á mig til baka og veifaði... ég sat og beið eftir 7unni og nagaði handabökin.
Hversvegna fékk ég ekki síman hennar? eða gaf henni síman minn? afhverju fæddist ég lúser?
Hún var dökkhærð með miklar krullur sem náðu niður á vanga, með brún augu, ljós-ólívubrún á hörund og íklædd brúnum Rúskinnsjakka og í útvíðum buxum. ef einhver kannast við hana commentið!!!!

KOMMENTIÐ ANDSKOTINN HAFI ÞAÐ!!!!!