All quiet in the westernworld
Vaknaði í morgun, veit ekki afhverju.. ég bara vaknaði..
ef ég vissi þó hversvegna ég gerði það, þá væri ég gáfaðari.
Fór áðan í göngutúr með einn nemanda minn, drengurinn er einhverfur og þroskaskertur að því marki að hann sagði ekki mikið, í rauninni ekki neitt, hann bað þó að heilsa.
En víkjum aftur að göngtúrnum. Gengið var um Fossvogskirkjugarð, og svo aðeins meira um fossvogskirkjugarð, og þar horfði ég ofan í opna gröf. Líklega var ekki búið að grafa neinn þar enda var fátt um mannin í gröfinni, í rauninni bara ormar, vatn og drulla.
Ég fór að hugsa út í þetta og ákvað að í raunninni væri best að vera ekkert að láta grafa sig þegar að því kæmi. Ég ætla frekar að láta brenna mig á bát. Það er hinsvegar ólöglegt... ég get ekki sagt að mér verði ekki sama þegar ég er dauður því ég er ekki viss um að það eigi eftir að skipta mig neinu máli, en að svo stöddu held ég að það sé skemmtilegra að brenna útá rúmsjó og falla með öllum vötnum í atlashaf og verða fiskafóður og reykur... þetta er jú gert Daglega á Ganges og ég væri til í að gera þetta.. tildæmis væri helvíti flott reyndar að láta brenna sig á Lagarfljóti, einhverstaðar ofarlega á héraði svo hægt væri að láta mig leggja út frá skóglendi... eins væri kúl að vera heigður í Ásbyrgi.. gallin er náttúrulega sá að þessir staðir eru úr alfaraleið.. sem er náttúrulega vesen.
En nóg um morbid hugleiðingar.. það er búið að vera helvíti gott veður í dag... viðrar vel til loftárása myndu einhverjir segja.. núna hlakkar mig rosalega til Roskilde
Nenni ekki meiru...
sól úti núna

<< Home